Fyrsti skóladagur eftir páska var í dag og við öll, stór og smá, kát og hress og til í vorið.
Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar verður haldinn þriðjudaginn 16. apríl kl. 17:30 á sal skólans. Allir foreldrar/forsjáraðilar og starfsfólk er hvatt til að mæta.
Sumardagurinn fyrsti er fimmtudaginn 25. apríl og er almennur frídagur. Daginn eftir, föstudaginn 26. apríl, er frídagur í Ísaksskóla.
Með ljúfum kveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla