Maí og júní í Ísaksskóla

Verkalýðsdagurinn er miðvikudaginn 1. maí og er almennur frídagur.

Uppstigningardagur er fimmtudaginn 9. maí og er almennur frídagur.

Leikjadagur verður fimmtudaginn 16. maí. Farið verður á Klambratún og farið í leiki sem Matti krull, Irma og Sóley Ósk skipuleggja.

Skipulagsdagur verður föstudaginn 17. maí. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag.

Annar í hvítasunnu er mánudaginn 20. maí og er almennur frídagur.

Síðasti kennsludagur er fimmtudagurinn 6. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur til kl. 13:20 hjá 5 ára og 14:00 hjá 6-9 ára.

Skólaárinu lýkur með skólaslitum. Foreldrar/forráðamenn og fjölskyldur eru velkomnar í skólann að hlýða á tröppusöng.

Kl. 13:30 Tröppusöngur 5 ára
Kl. 14:00 Tröppusöngur 6-9 ára

Engin frístund er að skólaslitum loknum.

Sumarskólinn hjá 5 og 6 ára hefst miðvikudaginn 12. júní.

Gleðilegt sumar,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top