Fjallganga Ísaksskóla 2026

Í morgun fór árleg fjallganga Ísaksskóla fram og að þessu sinni lá leiðin á Mosfell. Nemendur og starfsfólk áttu saman góða stund í fallegri náttúru og nutu útiverunnar, hreyfingarinnar og samverunnar.

Á leiðinni fundum við líka berjalyng og nokkrir nutu þess að tína sér ber og smakka beint úr lynginu.

Gangan gekk vel og allir komu hressir og glaðir til baka. Það er alltaf skemmtilegt að fara út úr skólastofunni, hreyfa sig saman og njóta íslenskrar náttúru.

Takk fyrir frábæran fjallgöngudag!
Starfsfólk Ísaksskóla.

Scroll to Top