Það var sannkölluð sól og gleði í loftinu þegar 5 ára börnin mættu í skólann í fyrsta sinn. Dagurinn gekk einstaklega vel og börnin tóku nýja umhverfinu af mikilli forvitni og áhuga.
Við áttum saman notalega stund, kynntumst skólanum og hvert öðru og nutum fallega veðursins. Það er óhætt að segja að skólaárið hafi farið vel af stað og við hlökkum til alls þess skemmtilega sem fram undan er.
Starfsfólk Ísaksskóla

