Rödd nemenda skiptir máli – hugmyndakassi tekinn í gagnið í Ísaksskóla
Í dag kynnti nemendafélag Ísaksskóla nýtt og spennandi verkefni fyrir öllum nemendahópum skólans, hugmyndakassa nemenda.
Markmiðið með hugmyndakassanum er að gefa öllum nemendum tækifæri til að láta rödd sína heyrast og koma með hugmyndir að því hvernig við getum gert Ísaksskóla enn betri. Hugmyndirnar geta verið stórar eða litlar, snúið að skólastarfinu, skólalóðinni, leikjum, aðstöðu eða einhverju allt öðru sem nemendum dettur í hug.
Allar hugmyndir skipta máli og allir geta lagt sitt af mörkum
Hugmyndakassinn verður staðsettur fyrir framan bókasafn skólans næstu tvær vikurnar. Á þeim tíma geta nemendur skrifað niður hugmyndir sínar og sett í kassann. Að tveimur vikum liðnum mun nemendafélagið fara yfir þær hugmyndir sem berast og taka þær saman. Fyrir jól verður síðan haldin kosning meðal nemenda, þar sem þeir fá sjálfir að velja hvaða hugmynd verður fyrir valinu og hrint í framkvæmd.
Með þessu verkefni viljum við efla lýðræðislega þátttöku nemenda, hvetja þá til frumkvæðis og sýna þeim að hugmyndir þeirra og skoðanir hafa raunverulegt vægi.
Við hlökkum til að sjá allar skemmtilegu, skapandi og spennandi hugmyndirnar sem nemendur okkar koma með 💛
Starfsfólk Ísaksskóla

