Verkalýðsdagurinn er mánudaginn 1. maí og er almennur frídagur. Skipulagsdagur verður þriðjudaginn 2. maí. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag. Uppstigningadagur er fimmtudaginn 18. maí og er almennur frídagur. Föstudaginn 19. maí er einnig frídagur í Ísaksskóla, enginn skóli og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Leikjadagur verður föstudaginn 26. maí. Farið verður á Mikla
Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn, Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar var haldinn í gær, þriðjudaginn 25. apríl. Stjórn skólans næsta starfsárið er óbreytt frá því fyrra. Stjórnina skipa þau Páll Harðarson fulltrúi foreldra og Jónas Þór Guðmundsson varamaður hans, Herdís Þórsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna og Lára Jóhannesdóttir varamaður hennar og Árni Sigurðsson fulltrúi foreldra og Berglin
Kæru foreldrar/forráðamenn. Minnum á skipulagsdagana okkar sem verða á morgun fimmtudaginn 30. og föstudaginn 31.mars. Athugið að þessa daga er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð eða Sólbrekku. Þannig að í dag er síðasti kennsludagur fyrir páska og mikið um gular fjaðrir, föndur og almenna gleði í Skóla Ísaks Jónssonar. Hver veit nema það læðist einhver fallegur páskaungi með heim í skóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.