Kæru foreldrar/forráðamenn. Sækja þarf um námsvist í Skóla Ísaks Jónssonar fyrir skólaárið 2016 – 2017 fyrir þau börn sem ekki eiga lögheimili í Reykjavík. Þetta þarf að gera ár hvert svo að skólinn fái greitt námsframlag með barninu. Umsókn þarf að berast fyrir 20. apríl 2016. kær kveðja Lára
Kæru foreldrar/forráðamenn, ættingjar og vinir Í tilefni 90 ára afmælis skólans bjóðum við aðstandendum nemenda til veislu föstudaginn 15. apríl kl. 13-14. Dagskráin fer fram í hátíðarsal skólans og að henni lokinni verðum gestum boðið að ganga um skólann og sjá afrakstur vinnu nemenda og þiggja veitingar. Þennan morgun fellur hefðbundinn söngur á sal niður. Vinsamlega leggið ekki bílunum þannig a
Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn Minni á ársfund skólans 2016 sem haldinn verður á morgun, þriðjudag 12. apríl kl. 17:30. Dagskrá: 1. Ávarp formanns skólanefndar 2. Skýrsla skólanefndar 3. Ársreikningur fyrir síðasta starfsár 4. Kosning í skólanefnd sk
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.