Kæru foreldrar/forráðamenn. Í dag fá nemendur skólasamninginn í töskupósti. Það kæmi sér vel fyrir okkur á skrifstofunni ef þið gætuð fyllt hann út þegar þið sækið ykkar barn. Annars er mikilvægt að hann komi útfylltur með neme
Kæru foreldrar/forráðamenn, Fyrsti skóladagurinn á nýju skólaári hjá 6-9 ára nemendum verður á föstudaginn kemur, þann 22. ágúst. Skóladagurinn hefst kl. 8:30 stendur kl. 14:10. Eftir það tekur Sunnuhlíð (frístundin 6-9 ára nemenda) við og hún t
Kæru foreldrar/forráðamenn. Af gefnu tilefni viljum við minna á að það eru þrjú nesti á dag í sumarskólanum. Byrjum á ávaxtabita/jógúrt kl. 10, hádegismatur og svo síðdegishressing. Leyfilegt er eins og áður sagði að koma með röradrykk, einn til tvo
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.