Kæru vinir, við minnum á vortónleika Barnakórs Ísaksskóla sem haldnir verða í Langholtskirkju á morgun, fimmtudaginn 10. apríl kl. 17:30. Þar má njóta ljúfra tóna barnanna um fuglana og vorið. Allir eru hjartanlega velkomnir!
Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn, Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar var haldinn í gær, þriðjudaginn 8. apríl. Sturlaugur Þór Halldórsson hætti í skólanefnd sem fulltrúi foreldra eftir fjögurra ára setu í nefndinni og í hans stað var kjör
Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn, Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar 2014 verður haldinn á þriðjudaginn kemur, þann 8. apríl, kl. 17:30. Dagskrá: Ávarp formanns skólanefndar Skýrsla skólanefndar Ársreikningur fyrir síðasta starfsár Kosning í s
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.