Elskulegu foreldrar/forráðamenn. Á morgun, föstudaginn 14. október, ætlum við að klæðast bleiku og lýsa skólann upp í bleikum ljóma. Endilega minnið börnin á að klæðast bleiku, með því sýnum við þeim sem greinst hafa með krabbamein stuðning okkar og samstöðu. Sjáumst í söngstund ljómandi bleik og fín. Lára Jóhannesdóttir Skrifstofustjóri
Verkefnið útivinir verður í gangi vetur. Útivinir er verkefni þar sem nokkrir 9 ára nemendur standa fyrir útileikjum á skólalóðinni í frímínútum fyrir yngri nemendur undir handleiðslu kennara. Foreldradagur er á morgun, þriðjudaginn 11. október. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennararnir hafa þegar haft samband og boðið viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin k
Kæru foreldrar/forráðamenn Umferðin við aðalinnganginn gengur brösuglega í morgunsárið. Einhverjir eru að leggja bílunum í rampnum og stíflast þá allt flæðið. Vandræðin náð alveg út á Miklubraut suma morgna. Það sem við þurfum öll að gera á morgnana er að nota rampinn aðeins til að hleypa börnunum okkar út. Þar á hvorki að leggja né stoppa til að bíða með börnunum í bílnum. Ég bið ykkur vinsamlega
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.