Kæru vinir, Árbæjarsafn býður nemendur Ísaksskóla og forráðamenn þeirra sérstaklega velkomna á jólasýningu safnsins sunnudaginn 8, 15 nú eða 22 desember – ykkar er valið frá klukkan 13:00 – 17:00. Með góðum kveðjum, Foreldrafélag Ísaksskóla
Ágætu foreldrar, Nú hefur verið tekið í notkun nýtt viðmót fyrir nemendur og foreldra birtast í Mentor. Innskráning er sú sama og áður en vissar upplýsingar birtast ykkur með öðrum hætti. Til að nálgast gögnin eins og þau voru áður þarf aðeins að smella á Fjölskylduvef og hér fyrir neðan er slóð á stutt myndband sem sýnir ykkur í hverju breytingarnar felast. http://www.youtube.com/watch?v=rkSNxzhn
Kæru söngvinir, fimmta söngskrá vetrarins er komin inn á vefinn okkar, undir samnefndan lið hér til vinstri. Hún gildir fyrir næstu þrjár vikur eða dagana 28. október – 15. nóvember. Góðar stundir.
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.