Skipulagsdagur verður mánudaginn 4. mars. Athugið að þennan dag er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð eða Sólbrekku. Dagur stærðfræðinnar er fimmtudagurinn 14. mars. Þemadagar verða þriðjudaginn 5. og miðvikudaginn 6. mars. Páskafrí. Síðasti kennsludagur fyrir páska er föstudagurinn 22. mars. Opið verður í Sólbrekku mánudaginn 25., þriðjudaginn 26. og miðvikudaginn 27. mars fyrir þau 5 ár
Dásamlegur öskudagur í Ísaksskóla og formlegri dagskrá senn að ljúka. Börnin eru búin að skemmta sér konunglega. Spennustigið í húsi er magnað og ótrúlega gaman að vera með þeim í þessari gleði. Kennararnir verða allir sendir í joga nidra eftir að kennslu lýkur og annað starfsfólk lagt í læsta hliðarlegu um 17:00. En að öllu gamni slepptu þá er þetta búið að vera dásamlegt og búið að gefa öllum pi
Foreldradagur verður miðvikudaginn 7. febrúar. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Opnað hefur verið fyrir bókanir í viðtölin á Mentor. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 12., þriðjudaginn 13. og miðvikudaginn 14. febrúar. Þeir eru hefðbundnir skóladagar hjá okkur. Þó vi
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.