Kæru vinir, Við í Ísaksskóla sendum ykkur bestu óskir um gleðileg jól og heillaríkt nýtt ár og þökkum samstarfið og samveruna á árinu sem er að líða. Kennsla hefst á nýju ári fimmtudaginn 4. janúar. Starfsfólk Ísaksskóla.
Elskulegu foreldrar/forráðamenn. Við sendum ykkur hjartans þakkir fyrir dásamlegu ostakörfuna sem foreldrafélagið færði okkur í morgunsárið. Við nutum þess í morgun að gæða okkur á dásamlegum ostum og dýrðar kræsingum. Takk fyrir ykkur! Takk fyrir að treysta okkur fyrir því dýrmætasta sem þið eigið! Takk fyrir samvinnuna og gleðina! Starfsfólk Ísaksskóla
Fyrsti sunnudagur í aðventu er 3. desember. Við kveiktum á fyrsta kerti aðventukransins föstudaginn 1. desember. Kirkjuferð er miðvikudaginn 6. desember. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri og gengið verður til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn, 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli. Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hver
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.