Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl á sal skólans kl. 17:30. Allir foreldrar/forráðamenn og starfsmenn eru hvattir til að mæta. Dagskrá: 1. Ávarp formanns skólanefndar 2. Skýrsla skólanefndar 3. Ársreikningur fyrir síðasta starfsár 4. Kosning í skólanefnd skv. samþykktum skólans 5. Kosning endurskoðenda 6. Önnur mál Með góðum kveðjum, Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 4., þriðjudaginn 5. og miðvikudaginn 6. mars. Þeir eru að jafnaði hefðbundnir skóladagar hjá okkur. Þó viljum við benda á að á: … bolludag mega börnin koma með rjómabollur í skólann í aukanesti. … sprengidag – saltkjöt og baunir, túkall. … öskudag mega börnin koma í búningum í skólann. Við viljum biðja ykkur um að geyma ö
Kæru foreldrar/forráðamenn. Við minnum á foreldradaginn á morgun 12. febrúar. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Ef þið þurfið að ná tali af sérgreinakennurum vinsamlega bókið tíma í síma 553 2590 hjá Láru eða sendið tölvupóst á viðkomandi kennara. Einnig vil ég minna á óskilamunina sem verða í salnum. Gott er að renna yfir þá og athuga hvort ekk
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.