Kæru vinir, Við viljum þakka öllum kærlega fyrir komuna á skólaslitin. Það var tilhlökkun í loftinu og vonandi fallegt og hlýtt sumar handan við hornið. Myndaalbúm tileinkað skólaslitunum er komið á vefinn og má sjá með því að smella hér Sumarskólinn hefst mánudaginn 12. júní og verður starfræktur til og með miðvikudagsins 19. júlí. Skrifstofa skólans er opin til og með föstudagsins 16. júní og op
Föstudaginn 2. júní var sannarlega glatt á hjalla í Ísaksskóla. Kl 10:00 lögðu börnin öll sem eitt, land undir fót og þrömmuðu sem leið lá á Klambratún. Þar tók íþróttateymið okkar, Kiddi, Sóley og Matti Guðmunds á móti þeim. Þau voru búin að setja upp hvorki meira nér minna en 15 leikjastöðvar fyrir krakkana sem tóku strax til fótanna um leið og á túnið var komið og léku við hvern sinn fingur í
Síðasti kennsludagur er miðvikudagurinn 7. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur til kl. 13:25 hjá 5 ára og 14:00 hjá 6-9 ára. Skólaárinu lýkur með skólaslitum. Foreldrar/forráðamenn og fjölskyldur eru velkomnar í skólann að hlýða á tröppusöng. Kl. 13:30 Tröppusöngur 5 ára Kl. 14:00 Tröppusöngur 6-9 ára Engin frístund er að skólaslitum loknum. Sumarskólinn hjá 5 og 6 ára hefst mánudaginn 12.
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.