Börnunum þótti ekki amalegt að mæta í skólann í morgun og vaða snjóinn á skólalóðinni sem lá óhreyfður frá því að honum kyngdi niður gær. Sannkallað vetrarríki, börnin skemmtu sér konunglega og eins og sjá má á þessarri mynd ríkti mikil gleði og glaumur í frímínútum dagsins.
Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 27., þriðjudaginn 28. febrúar og miðvikudaginn 1. mars. Þeir eru að jafnaði hefðbundnir skóladagar hjá okkur. Þó viljum við benda á að á: … bolludag mega börnin koma með rjómabollur í skólann í aukanesti. … sprengidag – saltkjöt og baunir, túkall. … öskudag mega börnin koma í búningum í skólann. Við viljum biðja ykkur um
Kæru foreldrar/forráðamenn. Við minnum á foreldradaginn á morgun, þriðjudaginn 14. febrúar. Við höfum lagt alla óskilamuni í tröppurnar í salnum og biðjum við ykkur að vera svo væn að kíkja yfir varninginn þar og athuga hvort eitthvað tilheyri ykkar barni/börnum. Þar er af nógu að taka. Við vekjum ennfremur athygli á því að þennan dag er engin kennsla né starfsemi í Sunnuhlíð/Sólbrekku. Með góðum
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.