Seinasti söngur á sal skólavetursins verður ef til vill seint toppaður. Okkar allra besta foreldrahljómsveit var á staðnum. Á trommum lék Daði Már Guðmundarson, á bassa var hún Ása Dýradóttir, á fiðlu var Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, á trompet var Eiríkur Orri Ólafsson og á slagverk Helga Margrét Marzellíusardóttir. Svo má ekki gleyma henni Sunnu Karen okkar sem stendur vaktina á flyglinum alla föstudaga. Hvað við erum heppin að eiga þessi hæfileikabúnt í foreldrahópnum og að þau séu til í að spila með!
Hápunkturinn var svo þegar Páll Óskar og Benni Hemm Hemm mættu óvænt og fluttu með börnunum þau mikilvægu lög ,Ég er eins og ég er’ og ,Eitt af blómunum.’ Það mátti sjá þónokkur vot augu í salnum þegar börnin tóku við laginu af Palla og sungu ,,þú ert fallegasti liturinn inn í risastóru litrófi.”
Heimurinn væri svo sannarlega leiðinlegt pleis ef að allir væru eins! Viljum við þakka Páli Óskari og Benna Hemm Hemm alveg kærlega fyrir komuna og fyrir þetta fallega og mikilvæga lag þeirra.
Hér má sjá upptöku af hátíðinni sjálfri. Lykilorð var sent til foreldra í tölvupósti.




