Alltaf sól í sumarskóla Ísaksskóla

Það hefur verið líf og fjör í sumarskóla Ísaksskóla þar sem dagarnir hafa verið fjölbreyttir, skemmtilegir og fullir af ævintýrum. Börnin hafa meðal annars farið í Guðmundarlund, heimsótt Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, Þjóðminjasafnið, tekið þátt í hjóladegi og búningadegi, skoðað nærumhverfið og spreytt sig á íþróttadegi.

Á hverjum degi hafa börnin fengið tækifæri til að leika, hreyfa sig, uppgötva nýja hluti og njóta samveru með vinum. Það má með sanni segja að alltaf sé sól í sumarskóla Ísaksskóla – sama hvernig viðrar!

Scroll to Top