• Heim
  • Kennarar
  • Mentor
  • Vefpóstur
  • Vefstjórn
email
  • FRÉTTIR
  • SKÓLINN
    • Um skólann
      • Starfsáætlun
      • Skólagjöld
      • Frístundaheimili
      • Skólareglur
      • Skólaráð
        • Reglugerð
        • Nemendaráð
      • Stjórn skólans
        • Samþykktir/skipulagsskrá
      • Umhverfisstefna
      • Jafnlaunastefna
      • Persónuverndarstefna
      • Mannauðsstefna
      • Heilsugæsla
      • Velkomin í Ísaksskóla | bæklingur
    • Að byrja í Ísaksskóla
    • Skólasókn
      • Skólasókn – íslenska
      • Attendance – english
      • Obecność – polski
    • Beiðni um leyfi fyrir nemanda
    • Skólasamningur skólaárið 2025-2026
    • Skóladagatal 2024-25 og drög að 2025-26
    • Sumarskóli SÍJ
    • Skólasöngur Ísaksskóla
    • Tómstundaframboð
    • Skipurit
    • Stefna og einkunnarorð
    • Ráð og teymi
      • Jafnréttisráð
      • Áfallaráð
      • Forvarnarteymi
      • Nemendaverndarráð
      • Innra mats teymi
      • Teymi gegn einelti
    • Farsæld barna
    • Mat á starfi
  • STARFSFÓLK
  • MYNDASÖFN
    • 2024 – 2025
    • 2023 – 2024
    • 2022 – 2023
    • 2021 – 2022
    • 2020 – 2021
    • 2019 – 2020
    • 2018 – 2019
    • 2017 – 2018
    • 2016 – 2017
    • 2015 – 2016
    • 2013 – 2014
  • FORELDRAR
    • Foreldravefurinn
    • Bekkjarfulltrúar
    • Foreldrafélag Ísaksskóla
      • Stjórn Foreldrafélags SÍJ
      • Foreldrafélag: Lög
      • Foreldrafélag: Viðburðir
    • Skólavinir
    • Skjáviðmið barna
    • Útivistarreglur barna
  • ÁÆTLANIR
    • Áfallaáætlun
    • Aðgerðaráætlun gegn einelti nemenda
    • Aðgerðaráætlun gegn einelti starfsfólks
    • Starfsáætlun Ísaksskóla
    • Starfsáætlun frístundar
    • Jafnréttisáætlun
    • Umbótaáætlun
    • Eldvarna og rýmingaráætlun
    • Heildaráætlun um sérkennslu
    • Móttökuáætlun f. nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
    • Móttökuáætlun f. nýtt starfsfólk
    • Umhverfisáætlun
    • Óveður / Öskufall
    • Öryggisáætlun
    • Símenntunaráætlun
    • Læsisstefna Skóla Ísaks Jónssonar
    • Viðbragðsáætlun almannavarna
    • Viðbragðsáætlun vegna fáliðunar – 5 ára deild
  • SKÓLANÁMSKRÁ
    • Skólanámskrá SÍJ
    • Námskrá 5 ára deildar
    • Námsmat SÍJ
    • Sérkennsla
  • UMSÓKN

Skólabyrjun í Ísaksskóla 2023-24

18. ágúst 2023
by vala@isaksskoli.is
Comments are off

Kæru foreldrar/forráðamenn,

Nú styttist í að skólaárið hefjist og vonandi eru allir að njóta síðustu frídaganna. Starfsfólk Ísaksskóla hlakkar til að hitta alla nemendur aftur sem og nýja nemendur við skólann. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til samstarfs og samvinnu á nýju skólaári.

Áður en skólinn hefst viljum við benda á nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við skólabyrjun.

Þriðjudagurinn 22. ágúst er fyrsti skóladagur hjá 6, 7, 8 og 9 ára nemendum. Skóladagurinn hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 14:00. Sunnuhlíð (frístundarstarf 6-9 ára nemenda) tekur til starfa strax fyrsta skóladaginn. Hún er opin til kl. 17:00 alla daga, nema til kl. 16:15 á föstudögum. 6-9 ára nemendur geta komið í Sólbrekku (morgunfrístund og leikskóladeild) kl. 7:30-8:30 alla morgna óski foreldrar/forráðamenn eftir því. Morgunfrístundin hefst miðvikudaginn 23. ágúst. Tómstundaframboð verður kynnt fljótlega eftir skólabyrjun og fer af stað upp úr miðjum september.

Fimm ára börn verða boðuð sérstaklega í skólann og nýir nemendur hitta kennarann sinn áður en skólinn hefst. Umsjónarkennarar munu hringja nú í vikunni og í þeirri næstu (5 ára) og boða nemendur og foreldra/forráðamenn í viðtal.

Fyrsti skóladagur 5 ára er þriðjudagurinn 29. ágúst. Skóladagurinn hefst kl. 8:30 og við lokum kl. 17:00 alla daga nema kl. 16:15 á föstudögum. Sólbrekka opnar kl. 7:30 á morgnana fyrir þá foreldra/forráðamenn sem óska eftir því að börnin komi fyrr. Við viljum þó benda á að gott er að fara rólega af stað með viðveru. Það er mikið álag á börnin að byrja í skóla og annarri viðveru á sama tíma.

Eins og alltaf fá nemendur öll gögn í skólanum, bækur og ritföng. Þeir þurfa einungis að hafa meðferðis (skóla)tösku sem rúmar A4 möppustærð, tátiljur fyrir leikfimi (fást í Ástund í Austurveri) eða sokka með stömum botni og vatnsbrúsa. Allir nemendur fá síðan plastvasa með rennilás fyrir námsgögnin.

Ávaxtastund er daglega rétt fyrir kl. 10:00. Nemendur koma með ávöxt, grænmeti, ávaxtastöng eða grænmetis- eða ávaxtaskvísu að heiman. Maturinn í hádeginu er frá Krúsku. Fyrsta máltíðin verður strax fyrsta daginn. Krúska kappkostar að vera ávallt með hollan og bragðgóðan mat. Þeir nemendur sem eru í frístundinni koma með hollt og gott eftirmiðdagsnesti en 5 ára fá nónhressingu í skólanum.

Ef einhverjar spurningar vakna bendum við ykkur á að hafa samband við skólann í síma 553-2590 eða skoða hér um á vefnum.

Gleðilegt nýtt skólaár,
starfsfólk Ísaksskóla

NÝJUSTU FRÉTTIRNAR

  • Páskafrí í Ísaksskóla 12. apríl 2025
  • Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar 8. apríl 2025
  • Vortónleikar barnakórs Ísaksskóla 3. apríl 2025
  • Öskudagurinn í Ísaksskóla 2025 5. mars 2025
  • Fjör á þemadögum 19. og 20. febrúar 2025 20. febrúar 2025

NÆSTU VIÐBURÐIR

  1. Skipulagsdagur

    12. maí @ 08:00 - 17:00
  2. Leikjadagur

    16. maí @ 08:00 - 17:00
  3. Uppstigningardagur

    29. maí @ 08:00 - 17:00
  4. Síðasti kennsludagur – skólaslit

    6. júní @ 08:00 - 17:00
  5. Sumarskólinn hefst

    12. júní @ 08:00 - 17:00

Skoða alla Viðburðir

Skóli Ísaks Jónssonar

Bólstaðarhlíð 20
105 Reykjavík

Sími: 553 2590
Netfang: isaksskoli@isaksskoli.is

Opnunartími skrifstofu er alla
skóladaga milli kl 8:00 - 16:00

 

.




Skóli Ísaks Jónssonar
Uppsetning og forritun: Tæknimiðlun ehf
Á þessu vefsvæði eru notaðar vafrakökur til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda.Ok