Skólabyrjun í Ísaksskóla haustið 2024

Kæru foreldrar/forsjáraðilar,

Nú styttist í að skólaárið hefjist og vonandi eru allir að njóta síðustu frídaganna. Starfsfólk Ísaksskóla hlakkar til að hitta alla nemendur aftur sem og nýja nemendur við skólann. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til samstarfs og samvinnu á nýju skólaári.

Áður en skólinn hefst viljum við benda á nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við skólabyrjun.

Fimmtudagurinn 22. ágúst er fyrsti skóladagur hjá 6, 7, 8 og 9 ára nemendum. Skóladagurinn hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 14:00. Sunnuhlíð (frístundarstarf 6-9 ára nemenda) tekur til starfa strax fyrsta skóladaginn. Hún er opin til kl. 17:00 alla daga, nema til kl. 16:15 á föstudögum. 6-9 ára nemendur geta komið í Sólbrekku (morgunfrístund og leikskóladeild) kl. 7:30-8:30 alla morgna óski foreldrar/forsjáraðilar eftir því. Ekki er þó hægt að mæta í morgungæsluna eftir kl. 8:20 þar til bjallan hringir kl. 8:30. Morgunfrístundin hefst föstudaginn 23. ágúst. Tómstundaframboð verður kynnt fljótlega eftir skólabyrjun og fer af stað upp úr miðjum september.

Fimm ára börn verða boðuð sérstaklega í skólann og nýir nemendur hitta kennarann sinn áður en skólinn hefst. Umsjónarkennarar munu hringja nú í vikunni og í þeirri næstu og boða nemendur og foreldra/forsjáraðila í viðtal.

Fyrsti skóladagur 5 ára er fimmtudagurinn 29. ágúst. Skóladagurinn hefst kl. 8:30 og við lokum kl. 17:00 alla daga nema kl. 16:15 á föstudögum. Sólbrekka opnar kl. 7:30 á morgnana fyrir þá foreldra/forsjáraðila sem óska eftir því að börnin komi fyrr. Ekki er þó hægt að mæta í morgungæsluna eftir kl. 8:20 þar til bjallan hringir kl. 8:30. Við viljum þó benda á að gott er að fara rólega af stað með viðveru. Það er mikið álag á börnin að byrja í skóla og annarri viðveru á sama tíma.

Eins og alltaf fá nemendur öll gögn í skólanum, bækur og ritföng. Þeir þurfa einungis að hafa meðferðis (skóla)tösku sem rúmar A4 möppustærð, tátiljur fyrir leikfimi (fást í Ástund í Austurveri) eða sokka með stömum botni og vatnsbrúsa. Allir nemendur fá síðan plastvasa með rennilás fyrir námsgögnin.

Ávaxtastund er daglega rétt fyrir kl. 10:00. Nemendur koma með ávöxt, grænmeti, ávaxtastöng eða grænmetis- eða ávaxtaskvísu að heiman. Maturinn í hádeginu er frá Krúsku. Fyrsta máltíðin verður strax fyrsta daginn. Krúska kappkostar að vera ávallt með hollan og bragðgóðan mat. Þeir nemendur sem eru í frístundinni koma með hollt og gott eftirmiðdagsnesti en 5 ára fá nónhressingu í skólanum.

Ef einhverjar spurningar vakna bendum við ykkur á að hafa samband við skólann í síma 553-2590 eða kíkja inn á heimasíðuna, www.isaksskoli.is.

Gleðilegt nýtt skólaár,
starfsfólk Ísaksskóla