Gleðin og hamingjan réði ríkjum í skólahúsinu í gær 11. janúar þegar Skólaleikar Ísaksskóla 2022 fóru fram.
Það var íþróttateymið okkar góða, Sóley Ósk, Matti Guðmunds og Kiddi sem skipulagði fjölbreyttar keppnisgreinar. Vítt og breytt um skólahúsið voru settar upp 9 stöðvar af ótrúlega skemmtilegum þrautum sem verður að teljast harla ólíklegt að þátttakendur hafi spreytt sig á áður. Þannig var markmiðið að þrautirnar hentuðu öllum og allir sætu við sama borð, stórir sem smáir krakkar knáir.
Það voru fimm ára börnin riðu á vaðið við fyrsta hanagal þegar hringt var inn 8:30. Þvínæst tóku 6 og 7 ára börnin við keflinu eftir litlu frímínútur og svo voru það 8 og 9 ára nemendur sem settu puntkinn yfir i á frábærum leikum í lok dagsins.
Myndasafn frá 6-7 ára leikunum er nú þegar komið á vefinn okkar og má sjá hér
Takk fyrir okkur og frábæran dag!
Starfsfólk Ísaksskóla