Sumarskóli Ísaksskóla

Kæru foreldrar/forráðamenn.

Í sumar líkt og síðustu sumur gefst nemendum í 5 og 6 ára bekkjum tækifæri  að sækja Sumarskóla Ísaksskóla. Sumarskólinn hefst 12. júní og stendur til og með 20. júlí. Í Sumarskólanum eru íþróttir, leikir og styttri ferðir alls ráðandi. Það er starfsfólk skólans sem heldur utan um starf Sumarskólans. Hægt er að skrá nemendur í eina viku í senn. Að sjálfsögðu geta nemendur verið hjá okkur allar sex vikurnar. Heitur matur verður á boðstólnum í hádeginu frá Móður náttúru og er hann innifalinn í verðinu.

Skrá þarf nemendur í sumarskólann fyrir 17. mars, og fer skráningin fram á heimasíðu skólans [smella hér]

Með hlýjum kveðjum,
starfsfólk Skóla Ísaks Jónssonar

 

Opnunartími:

Húsið er opið frá 8:00 til 17:00 mán.-fim. og til 16:00 á föstud.
Dagskrá er í gangi á milli 9:00 og 16:00.
Ekki er ætlast til að börnin séu lengur en 8 tíma á dag.

Matartími:

Þátttakendur þurfa að koma með ávaxtabita og síðdegishressingu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 553 2590
Einnig er hægt að senda póst á lara@isaksskoli.is

Scroll to Top