Frístundaheimili Ísaksskóla

Frístundaheimili Ísaksskóla heitir Sunnuhlíð.

Opnunartími er  7:30 – 17:00  ( lokar 16:15 föstudaga )

Smelltu hér ef þú vilt sækja um breytingu á vistunartíma fyrir barnið þitt.

Hér er síðan verðskrá skólaársins 2024-2025:

Verð í frístund Ísaksskóla
1-4 tímar á viku6.000krá mánuði
5-8 tímar á viku8.400krá mánuði
9-12 tímar á viku11.800krá mánuði
13-16 tímar á viku15.400krá mánuði
17-20+ tímar á viku19.300krá mánuði
Hálfur aukatími á dag4.500krá mánuði
Heill aukatími á dag9.500krá mánuði

Athugið að ofangreind verðskrá á ekki við um 5 ára börn úr Reykjavík því þau falla undir þjónustusamning við Reykjavíkurborg. Skólinn áskilur sér rétt til að breyta gjaldskránni með mánaðar fyrirvara.

Skólinn hefur gert samninga við Reykjavíkurborg og nágrannasveitarfélögin vegna reksturs frístundar. Foreldrar geta sótt um systkinaafslátt ef nemandi í frístund á yngra systkini sem er í frístund eða í leikskóla. Lögheimilis sveitarfélag barnsins verður að samþykkja þennan afslátt. Sótt er um systkinaafslátt í skólasamningi fyrir hvert skólaár.

Starfsfólk frístundaheimilis leiðbeinir og aðstoðar börnin í leik og starfi utan kennslustunda. Lögð er áhersla á að hvetja börnin til leikprýði og samvinnu. Í frístund eru einnig haldnar söngstundir og ýmislegt sem virkjar börnin til leiks í því sem þau hafa lært í skólanum.

Helga Ægisdóttir (helga@isaksskoli.is), Lára Jóhannesdóttir skrifstofustjóri (lara@isaksskoli.is) og Sigríður Anna Guðjónsdóttir skólastjóri (siganna@isaksskoli.is) hafa yfirumsjón með frístundinni.

Starfsfólk Sunnuhlíðar

Engar niðurstöður.

Starfsfólk Sólbrekku / leikskóladeildar 5 ára barna

Sunna Þuríður Sölvadóttir

Skólaliði / Sólbrekka

Persónuupplýsingar

Sunna starfar í Sunnuhlíð, frístundaheimili 6-9 ára barna skólans. Hún hóf störf við skólann í upphafi árs 2021.

Efnisflokkar: Solbrekka
Uppfært fyrir 8 months
Scroll to Top