Kæru foreldrar/forráðamenn
Umferðin við aðalinnganginn gengur brösuglega í morgunsárið. Einhverjir eru að leggja bílunum í rampnum og stíflast þá allt flæðið. Vandræðin náð alveg út á Miklubraut suma morgna.
Það sem við þurfum öll að gera á morgnana er að nota rampinn aðeins til að hleypa börnunum okkar út. Þar á hvorki að leggja né stoppa til að bíða með börnunum í bílnum. Ég bið ykkur vinsamlega að leggja í stæði á öðrum stöðum og ganga með börnunum ykkar stuttan spöl ef þið viljið fylgja þeim í skólann. Ýmsir möguleikar eru til að leggja bílum í nágrenni við skólann eins og við Menntavísindasvið (Kennaraháskólann), við kirkju Óháða safnaðarins, í lögleg stæði í nærliggjandi götum og sunnan við Miklubraut (þá er farið yfir á gönguljósunum).
Neðst í þessarri frétt er afstöðumynd af skólanum og nágrenni og ökuleiðum að skólanum. Þyngstu teppurnar myndast ef ekið er niður Stakkahlíðina og þar tekin u-beygja inn í rampinn. Allir sem koma þá leið ættu að velja Lönguhlíðina til suðurs og beygja síðan inn Skaftahlíðina og koma þar inn í rampinn. Umferð frá Miklubraut þarf að hleypa bílum sem koma Skaftahlíðina inn í röðina. Þegar búið er að hleypa börnunum út þarf að aka áfram í átt að gamla Sjómannaskólanum til þess að láta umferðina renna ljúflega (ekki taka u-beygju úr rampinum). Sama á við um þá sem velja að fara inn Bólstaðarhlíðina og leggja þar til að fylgja börnunum inn á skólalóðina, að taka hægri beygju á leiðinni út í umferðina aftur í Stakkahlíðinni (í átt að gamla Sjómannaskólanum).
Ég veit að við lögum þetta saman og stöndum okkur öll sem eitt héðan í frá.
Mínar allra bestu kveðjur,
Sigríður Anna