Hrekkjavökugleði í Ísaksskóla

Það var heldur betur líf og fjör í Ísaksskóla í dag þegar nemendur og starfsfólk fögnuðu hrekkjavökunni með gleði og skemmtilegum degi.

Skólagangarnir fylltust af alls kyns furðuverum, draugum, nornum, ofurhetjum og öðrum litríkum persónum. Nemendur og starfsfólk lögðu sig fram við að skapa skemmtilega stemningu og víða mátti sjá frumlega og skemmtilega búninga.

Það er alltaf gaman að brjóta upp hefðbundið skólastarf með viðburðum sem þessum, þar sem gleði, sköpunarkraftur og samvera fá að njóta sín.

Við þökkum öllum nemendum og starfsfólki fyrir þátttökuna og fyrir að gera daginn svona skemmtilegan.

Gleðilega hrekkjavöku frá okkur öllum í Ísaksskóla! 

Scroll to Top