Á tímabilinu 31. janúar – 8. mars 2012 var gerð könnun með það að markmiði að skoða viðhorf foreldra til Skóla Ísaks Jónssonar og bera saman við niðurstöður fyrri viðhorfskannana.
Um var að ræða netkönnun sem framkvæmd var af tölfræði- og rannsóknaþjónustu Menntasviðs sem einnig sá um úrvinnslu og skýrslugerð.
Úrtak forráðamanna var tekið af handahófi úr nemendaskrá grunnskólanna. Reynt var að hafa jafna dreifingu milli kyns og aldurs nemenda í úrtaki og ekki færri en 90 í hverjum skóla. Í þeim skólum þar sem nemendur voru færri en 90 voru allir nemendur í úrtaki. Ekki var spurt um fleiri en einn nemanda frá sama heimili. Könnunin var fyrst send á netfang annars forráðamanns og svo hins ef svar barst ekki frá þeim fyrri.
Í Skóla Ísaks Jónssonar voru 106 í úrtaki og fengust svör frá 73 sem er 69% svarhlutfall.
Hægt er að skoða niðurstöður úr könnuninni hér. [sækja skrá]