Sumarstarfi lokið og undirbúningur haustsins hafinn í Ísaksskóla

Sumarskóla Ísaksskóla lauk 22. júlí eftir vel heppnað og líflegt sumarstarf. Nú beinist athyglin að undirbúningi fyrir komandi skólaár bæði að utan og innan.

Undanfarnar vikur hefur skólahúsnæðið verið málað og hresst upp, og er skólinn því að taka á sig nýjan og fallegan svip fyrir haustið. Á næstu vikum verður áfram unnið að undirbúningi starfsins og móttöku nemenda.

Starfsfólk snýr til starfa á ný um miðjan ágúst og hefst þá vinna af fullum krafti við að leggja lokahönd á undirbúning nýs skólaárs. Mikil tilhlökkun er meðal starfsfólks að taka á móti nemendum og hefja enn eitt kraftmikið og farsælt skólaár í Ísaksskóla.

Skólasetning og fyrsti skóladagur 6-9 ára nemenda er mánudaginn 24. ágúst kl. 8:30 og fyrsti skóladagur 5 ára barna er föstudaginn 28. ágúst kl. 8:30. Daginn áður, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17:30 er kynningarfundur fyrir foreldra 5 ára barna.

Scroll to Top