Ágætu foreldrar/forráðamenn nemenda í Ísaksskóla Myndataka á vegum Skólamynda verður miðvikudag 21. sept., fimmtudag 22. sept. og föstudag 23. sept. Við myndum einstaklingsmyndir og hópmynd af hverjum bekk. Myndirnar fara síðan á vef Skólamynda og með aðgangslykli fyrir hverja bekkjardeild getur fólk skoðað og valið myndir til kaups, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Við sendum tölvupós
Kæru foreldrar/forráðamenn. Í tilefni sólar og sumarstemningar höfum við ákveðið að reima á okkur gönguskóna og fara með alla nemendur skólans í skemmtilega fjallgöngu á morgun miðvikudaginn 7. september. Ferðinni er heitið á Úlfarsfellið fagra. Mikilvægt er að vera mætt tímanlega í skólann, búin að pissa og gera allt sem lítið fólk þarf að gera áður en lagt er af stað í gönguna. Brottför verður k
Kæru foreldrar/forráðamenn Skólaárið fer ljúflega af stað og smám saman erum við öll að lenda og ró að færast yfir skólann hans Ísaks. Okkur langar til að minna alla á að aðalinngangurinn er lokaður til kl. 8:30 á morgnana en opið við 5 ára innganginn fyrir þá sem koma í morgunfrístundina frá kl. 7:30. Við munum ekki halda sérstakan foreldrafund 6-9 ára eftir skóla eins og við gerðum fyrir Covid,
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.