Komið þið sæl. Vortónleikar Barnakórs Ísaksskóla og Barna og unglinakórs Hallgrímskirkju (kóranna minna) verða haldnir næstkomandi fimmtudag 26. maí klukkan 17:30 – á sal Ísaksskóla (sjá viðhengi). Foreldrar og nemendur Ísaksskóla eru boðin sérstaklega velkomin að kynna sér kórstarfið og njóta þessarar uppskeruhátíðar og vorgleði með okkur. Áhugasamir geta skráð sig og verið með frá og með n
Uppstigningadagur er fimmtudaginn 5. maí og er almennur frídagur. Annar í hvítasunnu er mánudaginn 16. maí og er almennur frídagur. Leikjadagar verða föstudaginn 20. maí. Farið verður á Miklatún og farið í leiki sem Matti íþróttakennari skipuleggur. Laugardalurinn/Klambratún – Með dags fyrirvara í síðustu skólaviku er farið í gönguferð. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 og komið til
Kæru foreldrar/forráðamenn, ættingjar og vinir Minnum á 90 ára afmælishátíðina á morgun kl. 13-14. Dagskráin fer fram í hátíðarsal skólans og að henni lokinni er gestum boðið að ganga um skólann og sjá afrakstur vinnu nemenda og þiggja veitingar. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest, starfsfólk Ísaksskóla Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.