Kæru foreldrar/forráðamenn, Nágranni okkar hér í Ísaksskóla hafði samband vegna umferðaröngþveitisins í morgun. Ég bið ykkur að sýna nærgætni og leggja ekki bílunum þannig að umferð teppist á meðan þið farið með börnin inn í s
Haldið var í árlega kirkjuferð skólans í dag. Lagt var af stað fótgangandi á yndislega fallegum vetrarmorgni þar sem gengið var til Háteigskirkju, Þegar í kirkjuna var komið tók Séra María hátíðlega á móti okkur líkt og undanfarin ár. B&oum
Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því lagt er af stað frá skólanum og gengið til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn. 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli. Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hvern bekk skólans. Aðstandendur eru velkomnir í kirkjuna en taka sér sæti aftan við börnin í kirkjunni og á hliðarbekkjum. Helga Æ
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.