Kæru foreldrar/forráðamenn Á morgun, þriðjudaginn 1. des. er búist við fyrsta veðurhvelli vetrarins og sendi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins út tilkynningu 1 nú síðdegis þar sem foreldrar/forráðamenn voru hvattir til að fylgjast vel með veðri í fyrramáli&
Kæru foreldrar/forráðamenn. Nú er veðurspáin ekki neitt sérstaklega spennandi á morgun og óvíst hvernig færð verður á götum borgarinnar. Okkur langar því að biðja ykkur vinsamlega að setja aukasamloku í töskur barnanna ef svo færi að maturinn kæmist ekki &ia
Foreldrafélagið stendur fyrir jólaferðum á Árbæjarsafn þrjá sunnudaga á aðventu, 6., 13. eða 20. desember – nemendur fá afsláttarmiða heim í skólatöskunni í dag. Kirkjuferð er miðvikudaginn 2. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.