Kæru vinir, Við minnum ykkur á að Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 14. apríl á sal skólans kl. 17:30. Allir foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að mæta. Dagskrá: 1. Ávarp formanns skólanefndar 2. Skýrsla skólanefndar 3. Ársreikningur fyrir síðasta starfsár 4. Kosning í skólanefnd skv. samþykktum skólans 5. Kosning endurskoðenda 6. Önnur mál Mínar bestu kve
Kæru foreldrar / forráðamenn, Við ætlum að hafa bláan dag á morgun föstudaginn 10. apríl. Tilefnið er alþjóðlegur dagur einhverfunnar. Hann er haldinn um allan heim þann 2. apríl ár hvert og er fólk um allan heim hvatt til að klæðast bláum fötum þennan ág&
Kæru vinir, nú eru komin drög að skóladagatali skólaársins 2015.16 og má hlaða niður skjalnu niður úr skjalasafninu hér efst til hægri á síðunni. Athugið að dagatalið er birt með fyrirvara um breytingar.
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.