Kæru foreldrar/forráðamenn. Í sumar gefst nemendum í 5 og 6 ára bekkjum enn einu sinni tækifæri til að sækja Sumarskóla Ísaksskóla. Sumarskólinn hefst 10. júní og stendur til og með 17. júlí. Lengd Sumarskólans er alfarið háð þátttöku
Páskafrí. Síðasti kennsludagur fyrir páska var föstudagurinn 27. mars. Skólinn hefst aftur miðvikudaginn 8. apríl. Ársfundur Skóla Ísaks Jónssonar verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl kl. 17:30 á sal skólans. Allir foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að mæta
Kæru foreldrar/forráðamenn, Á morgun föstudag, síðasta dag fyrir páskafrí, er hugmyndin að taka upp alþjóðlega hamingjudaginn sem var síðastliðin föstudag. Þá munum við starfsfólkið mæta í sitthvorum skónum en nemendur í sitthvorum sokknum til
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.