Árlegt Páskabingó Ísaksskóla verður haldið dagana 17. og 18. mars kl. 17:15-19:00. Þriðjudaginn 17. mars spila: 9 ára MM, 8 ára BÞ, 7 ára IG, 6 ára EBH, 6 ára BVK, 5 ára HK, 5 ára ALH. Miðvikudaginn 18. mars spila: 9 ára MBD, 8 ára SÓL, 7 ára VLA, 6
Á morgun, föstudaginn 6. mars, verður skipulagsdagur í Ísaksskóla. Engin kennsla né gæsla verður í skólanum. Sjáumst öll kát og glöð á mánudagsmorgun. Góða helgi, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.