Kæru foreldrar og forráðamenn, Sund verður einu sinni í viku hjá 6-9 ára bekkjum frá 3. september og fram í mars/apríl. Þriggja vikna frí verður á sundinu í október og í mars eins og áður. Samræmd próf verða í íslensku fimmtudaginn 25. september og &
Kæru vinir, nú hafa öll börnin fengið heim með sér í töskupósti blað yfir tómstundaframboð nú á haustönn. Einnig er hægt að nálgast skjalið hér á vefnum okkar með því að smella hér | sækja skrá
Kæru foreldrar/forráðamenn Minnum á foreldrakynningu 6-9 ára á morgun kl. 17:30. Ekki er ætlast til að börnin komi með. Byrjað verður á dagskrá á sal og að henni lokinni verður námskynning í umsjón kennara inni í skólastofum. Okkar bestu kveðjur, starfsfólk &I
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.