Kæru foreldrar/forráðamenn, Fimmtudagurinn 1. maí er almennur frídagur. Grænn dagur er laugardaginn 10. maí. Þetta er ,,útikennsludagur" þar sem foreldrar, nemendur og starfsmenn vinna saman að því að fegra skólalóðina okkar. Við mætum kl. 11:00 (ath breyting frá áð
Kæru foreldrar / forráðmenn. Við minnum á mikilvægi þess að þeir sem ekki búa í Reykjavík þurfa að sækja um námsvist fyrir börnin sín hjá sínum sveitafélögum. Það er mikilvægt er að ganga frá þessu strax, svo skólinn
Kæru vinir, við minnum á vortónleika Barnakórs Ísaksskóla sem haldnir verða í Langholtskirkju á morgun, fimmtudaginn 10. apríl kl. 17:30. Þar má njóta ljúfra tóna barnanna um fuglana og vorið. Allir eru hjartanlega velkomnir!
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.