Skólastjórinn okkar Sigríður Anna Guðjónsdóttir var gestur hjá Sirrý á Sunnudagsmorgni, á Rás 2 þann 19. janúar síðastliðinn. Þær stöllur ræddu m.a. um börn og lestur en Ísakskóli hefur notað sömu aðferðir við lestrarkennslu lengi
Kæru foreldrar / forráðamenn, Flensan er farin að herja á börn og fullorðna. Við viljum því minna á að eftir veikindi leyfum við inniveru í frímínútum í 2 daga. Innivera er ekki hugsuð sem fyrirbyggjandi aðgerð. Með ljúfum kveðjum, starfsfólk Ísakss
Nú eru þemadagar að renna upp. Þemað fjallar um samgöngur og ætlum við því að bregða okkur af bæ og fara í rútuferð. Við biðjum ykkur að senda þau með röradrykk í nesti í litlum bakpoka. Ferðin er fyrirhuguð fimmtudaginn 30. jan. Við bjóðum upp&aacu
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.