Kæru vinir, hér kemur yfirlit yfir það helsta sem er að gerast hjá okkur í októbermánuði: Sundið er komið í frí. Fyrsti sundtími eftir fríið er þriðjudaginn 29. október. Vinavika verður 30. september – 4. október Þemadagar verða þriðjudaginn 15., miðvikudaginn 16. og fimmtudaginn 17. október. Vetrarfrí er föstudaginn 18. október, mánudaginn 21. og þriðjudaginn 22. október. Athugið að þessa þ
Kæru foreldrar/forráðamenn. Á morgun og á föstudag þreyta nemendur 9 ára bekkja samræmd próf. Vinsamlega gangið hljóðlega um og notið eingöngu neðri ganginn til kl. 11:45 báða dagana. Vegna prófanna verður ekki söngur á sal á föstudagsmorgun. Með skólakveðjum, Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Kæru söngfuglar, þriðja söngskrá vetrarins er komin inn á vefinn okkar, undir samnefndan lið hér til vinstri. Hún gildir fyrir næstu þrjár vikur eða dgana 23. september – 11. október. Góðar stundir.
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.