Engin kirkjuferð verður í ár. Við munum gera eitthvað notalegt í skólanum í staðinn. Jólasveinahúfudagur verður föstudaginn 10. desember. Þá mega allir nemendur koma með húfuna í skólann. Litlu jólin eru föstudaginn 17. desember í skólastofum. Þann dag er venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með smákökur og drykkjarföng í fernum (röradrykk) í aukanesti. Ekkert gos er leyfilegt. Jólatréssk
Kæru foreldrar/forráðamenn Þar sem smitum hefur fjölgað mikið í samfélaginu óskum við eftir því kæru foreldrar/ forráðamenn að þið komið ekki inn í skólann nema brýna nauðsyn beri til. Ef börnin eru sótt eftir kl. 15 er leyfilegt að koma inn en gæta þarf fyllstu varúðar. Einnig biðjum við alla gesti að bera grímur við komuna inn í skólann. Við þurfum að grípa til þessa til að sporna við frekari sm
Vinavika verður 1.-5. nóvember. Dagur íslenskrar tungu er laugardaginn 16. nóvember. Við höldum upp á daginn og fáum góða gesti í hús. Fyrsti sunnudagur í aðventu er 28. nóvember. Við kveiktum á fyrsta kerti aðventukransins föstudaginn 26. nóvember. Með fallegum vetrarkveðjum, Starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.