Kæru foreldrar/forráðamenn Til þess að koma í veg fyrir umferðarhnútinn sem myndast hjá skólanum á morgnana er mikilvægt að við notum rampinn sem er fyrir framan aðaldyr skólans aðeins til að hleypa börnunum okkar út. Þar á hvorki að leggja né stoppa til að bíða með börnunum í bílnum. Ég bið ykkur vinsamlega að leggja í stæði á öðrum stöðum og ganga með börnunum ykkar stuttan spöl ef þið viljið fy
Við óskum öllum, nemendum, kennurum, foreldrum og forráðamönnum hjartanlega til hamingju með nýtt skólaár um leið og við bjóðum alla velkomna til leiks. Fyrsti skóladagurinn var í dag í Ísaksskóla og skólalóðin- og húsið farið að iða af lífi á ný. 6, 7, 8 og 9 ára börn eru mætt til kennslu. Mörg andlitin vel þekkt hér í skólanum en sumir að stíga sín fyrstu skref hér hjá okkur og bjóðum við þá nem
Kæru foreldrar/forráðamenn, Nú styttist í að skólaárið hefjist og vonandi eru allir að njóta síðustu frídaganna. Starfsfólk Ísaksskóla hlakkar til að hitta alla nemendur aftur sem og nýja nemendur við skólann. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til samstarfs og samvinnu á nýju skólaári. Áður en skólinn hefst viljum við benda á nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við skólabyrjun. Mánuda
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.