Dagur stærðfræðinnar er 7. febrúar. Foreldradagur verður miðvikudaginn 10. febrúar. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Kennarar munu hafa samband við foreldra/forráðamenn og bjóða viðtalstíma á netinu eins og í haust. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru mánudaginn 15., þriðjudaginn
Föstudaginn 22. janúar var árleg Þorragleði haldin hátíðleg í Ísaksskóla. Þá komu börnin mörg hver í lopapeysu eða öðrum þjóðlegum klæðnaði. Þorralögin voru sungin og ómuðu allan skóla. Að lokum fengu börnin að smakka ekta þorramat sem þeim þótti bæði framandi og fyndið að fylgjast með hvort öðru renna niður sviðasultu, lundabgga, hákarli og hrútspungum svo eitthvað sé nefnt.
Þorragleði verður föstudaginn 22. janúar. Þá mega allir koma í lopapeysu eða þjóðlegum klæðnaði. Þorralögin verða sungin um allan skóla og börnin fá að smakka þorramat. Þemadagar verða miðvikudaginn 27. og fimmtudaginn 28. janúar. Þessa tvo daga verður allt skólastarf brotið upp fram að hádegi. Þemað í ár er þjóðsögurnar. Með hlýjum vetrarkveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.