Kæru foreldrar, Mikil samstaða myndaðist á fræðslufundi Foreldrafélagsins í vikunni að gera merkingarátak á fötum barnanna okkar, því öll föt merkt barni endar í hólfi þeirra í samhenta Ísakskólasamfélaginu! Það er huggulegt föndur að merkja fötin sín með börnunum í skammdeginu, undir undirspili kardímommubæjarins „hvar er húfan mín og hvar er hettan mín…“ og þá verður ennþá skem
Gul veðurviðvörun er í dag fimmtudag 26. nóvember frá kl 09:00 til kl. 05:00 föstudaginn 27.nóvember. Sjá upplýsingar frá Veðurstofunni hér: https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á a
Kæru foreldrar/forráðamenn, Mikið er gaman að segja ykkur frá því að starf barnanna mun aftur færast í eðlilegt horf frá og með morgundeginum, fimmtudeginum 19. nóvember. Morgungæsla og frístundin hefjast að nýju, sem og skólasund og íþróttir innandyra. Tómstundaframboðið fer líka í gang í frístundinni. Því miður getum við enn ekki boðið ykkur inn í hús, en vonandi breytist það fljótlega. Talstöðv
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.