Kæru foreldrar/forráðamenn Nú er mikilvægt að við tökum höndum saman og losum um umferðarhnútinn sem myndast hjá skólanum á morgnana. Það er mikilvægt að við notum rampinn sem er fyrir framan aðaldyr skólans aðeins til að hleypa börnunum okkar út. Þar á hvorki að leggja né stoppa til að bíða með börnunum í bílnum. Ég bið ykkur vinsamlega að leggja í stæði á öðrum stöðum og ganga með börnunum ykkar
Kæru vinir, Það voru alsæl börn í Ísaksskóla sem gæddu sér á Valdísar ís í eftirrétt í hádeginu í dag. Það voru heiðurshjónin Gylfi Thor Valdimarsson og Anna Svava Knútsdóttir eigendur Ísbúðarinnar Valdís sem stóðu vaktina í hádegisfrímínútum ásamt þeim Kristínu Þóru og Hörpu sáu til þess að allir, fullorðnir og börn, fengu að velja sér ís. Nokkrar myndir frá ísdeginum eru komnar inn í sér myndasa
Kæru foreldrar/forráðamenn 5 ára barna, Til þess að einfalda lífið í byrjun skóladags á meðan takmörkun á skólastarfi stendur höfum við ákveðið að opna 5 ára deildina kl. 8:15 frá og með morgundeginum, 10. nóvember til og með 17. nóvember eða eins lengi og þurfa þykir. Þið getið því komið með börnin beint að 5 ára innganginum. Þar verður Alexandra og leiðir umferðina inn í stofurnar. Skóladagurinn
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.