Kæru foreldrar og forráðamenn, Á morgun, mánudaginn 2. nóvember verður skipulagsdagur í skólanum okkar. Sveitarfélögin og almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hafa skipulagsdag í leik- og grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi mánudaginn 2. nóvember vegna hertra sóttvarnarreglna stjórnvalda til varnar COVID-19. Mánudagurinn 2. nóvember verður notaður í að útfæra skólastarfið
Dear parents and guardians, We will have an organizational day in our school on Monday, November 2nd Municipalities and the Civil Protection and Emergency Management of the greater Reykjavík area have decided to have an organizational day in preschools, primary schools, music schools and after school centers on Monday, November 2nd because of tightened mitigation rules set by the government to pr
Foreldradagur er fimmtudaginn 8. október. Þann dag fara fram einstaklingsviðtöl foreldra við kennara. Viðtalsfundir verða að þessu sinni rafrænir. Kennarar munu hafa samband við foreldra og bjóða viðtalstíma. Athugið að á foreldradegi er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku. Skipulagsdagur verður föstudaginn 9. október. Athugið að þann dag er engin kennsla og ekki starfsemi í S
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.