Kæru vinir, Reikningagerð vegna skólaársins er nú hafin hjá okkur og hafa allir foreldrar/forráðamenn fengið september reikninginn í tölvupósti. Mikilvægt er að tölvupóstfang greiðanda sé rétt skráð hjá skólanum. Ef einhver telur sig ekki hafa fengið reikninginn er best að hafa samband við Láru skrifstofustjóra í síma 553 2590 eða lara@isaksskoli.is. Stofnuð er bankakrafa vegna allra reikninga á k
Bekkjamyndir verða teknar þriðjudaginn 22. (7 ára og 8 ára), miðvikudaginn 23. (5 ára) og fimmtudaginn 24. september (6 ára og 9 ára). Samræmd próf verða í íslensku miðvikudaginn 30. september og í stærðfræði fimmtudaginn 1. október hjá 9 ára. Á meðan á samræmdu prófunum stendur fara þeir bekkir sem eru á sama gangi í skipulagðar vettvangsferðir báða dagana. Þar sem hefðbundnar foreldrakynningar f
Kæru vinir, Undanfarin ár hefur skólinn lagt ríka áherslu á að börnin geti sótt fjölbreytt tómstundastarf innan skólans á samtengt skólastarfinu. Í árið í ár er engin undantekning, og með því að smella á þessa frétt má sjá yfirlit yfir tómstundaframboð haustsins 2020.
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.