Kæru foreldrar/forráðamenn, Mars mánuður er nú liðinn en skólahald var með breyttu sniði eftir þann 16. mars eins og þið vitið. Apríl reikningar hafa nú verið sendir út með afslætti vegna þessara breytinga í mars. Það sama gerist með maí reikninginn. Hann mun innihalda þessa afslætti vegna apríl mánaðar. Með hlýjum kveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Góðan daginn. Á næstu vikum verður eitt Ísaksskóla mót á viku alltaf á sama tíma, þriðjudögum klukkan 16:30. Einnig verða Reykjavíkurmót gegn öllum skólum á fimmtudögum og laugardögum. Skref 1: Búa til aðgang inná chess.com (frítt) Skref 2: Gerast meðlimur í hópum: Skákklúbbur Ísaksskóla: https://www.chess.com/club/skakklubbur-isaksskola Reykjavíkur-skólar: https://www.chess.com/club/reykj
Kæru foreldrar/forráðamenn, Hér má sækja er skjal um skipulag skólastarfs næstu daga sem við biðjum ykkur um að lesa vel. Eins og við vitum öll breytast hlutirnir hratt þessa dagana og því mikilvægt að fylgjast vel með. | sækja skrá / athugið að það er nauðsynlegt að smella á fréttina til þess að hlaða niður skránni Með hlýjum kveðjum, starfsfólk Ísaksskóla
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.