Kæru foreldrar/forráðamenn Nú styttist í stóru stundina og fyrsti skóladagurinn að verða að veruleika. Nemendur eiga að fara í raðirnar sínar úti á skólalóð (eins og þær voru í vor) þar sem kennarinn tekur á móti þeim um leið og hringir inn kl. 8:30. Nýir nemendur finna kennarann sinn og sameinast bekknum sínum. Engir foreldrar/forráðamenn mega koma inn í skólann og við biðjum ykkur um að virða 2
Kæru foreldrar/forráðamenn Veðurblíðan í vikunni er töfrum líkust og vonandi eru allir að njóta síðustu frídaganna fyrir skólabyrjun. Starfsfólk Ísaksskóla hlakkar til að hitta alla nemendur aftur sem og nýja nemendur við skólann. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til samstarfs á nýju skólaári. Áður en skólinn hefst viljum við benda á nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við skólabyrju
Kæru foreldrar/forráðamenn og gestir, Takk fyrir yndislega kveðjustund í tröppusöngnum í dag. Við þökkum fyrir eftirminnilegan vetur og hlökkum til sumars og sólar. Meðfylgjandi er upptaka frá söngstund fyrir nokkrum dögum síðan þar sem börnin sem þá voru í húsi tóku létta æfingu fyrir skólaslitin. Fallegur dagur: https://vimeo.com/426202191 Litla flugan: https://vimeo.com/426204650 Vikivaki: http
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.