Í kvöld verður sýnd á RÚV kl. 20:05 heimildarmyndin Ísaksskóli í 90 ár sem frumsýnd var á afmælisári skólans 2016. Hrefna Hallgrímsdóttir og Bragi Þór Hinriksson unnu að gerð myndarinnar í tæp tvö ár og tókst þeim með ómældri vinnu að fanga brot af sögu skólans frá upphafi til ársins 2016. Margir komu að vinnu myndarinnar og tókst að safna saman ómetanlegum sögulegum verðmætum sem koma til með að
Kæru foreldrar/forráðamenn, Gul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 15:00 í dag og mikilvægt að þið sækið börnin í lok skóla eða frístundastarfs í dag þriðjudag. Börn eru óhult hjá okkur þar til þau verða sótt. Fótboltaæfingar hjá Val falla niður í dag en handboltaæfingarnar verða á sínum stað. Með hlýjum kveðjum, Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt gamalt og gott. Um leið og við rennum af krafti og full tilhlökkunar inn í nýtt ár leggjum við línurnar fyrir janúar í Ísaksskóla. Fyrsti skóladagurinn á nýju ári er mánudagurinn 6. janúar kl. 8:30. Þorragleði verður föstudaginn 24. janúar. Þann dag mega allir koma í lopapeysu eða þjóðlegum klæðnaði. Í söng á sal verða þorralög sungin og eftir söngstund fá börn
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.