Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt gamalt og gott. Um leið og við rennum af krafti og full tilhlökkunar inn í nýtt ár leggjum við línurnar fyrir janúar í Ísaksskóla. Fyrsti skóladagurinn á nýju ári er mánudagurinn 6. janúar kl. 8:30. Þorragleði verður föstudaginn 24. janúar. Þann dag mega allir koma í lopapeysu eða þjóðlegum klæðnaði. Í söng á sal verða þorralög sungin og eftir söngstund fá börn
Kæru vinir, við sendum ykkur hugheilar jólakveðjur með óskum um farsæld og frið á komandi ári. Kærar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst aftur á nýju ári mánudaginn 6. janúar 2020. Starfsfólk Skóla Ísaks Jónssonar
Kæru foreldrar/foráðamenn. Á morgun verða jólaskemmtanir í Ísakssksóla og viljum við því biðja ykkur að taka allan hlífðarfatnað/töskur með heim í dag þegar þið sækir börnin. Einnig væri gott að líta í óskilamunakörfurnar og athuga hvort eitthvað leynist þar. Með hátíðarkveðju.
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.