Fyrsti sunnudagur í aðventu er 1. desember. Við kveiktum á fyrsta kerti aðventukransins í morgun, föstudaginn 29. nóvember. Foreldrafélagið stendur fyrir jólaferðum á Árbæjarsafn tvo sunnudaga á aðventu 15. eða 22. desember – afsláttarmiðarnir verða settir í skólatöskurnar í dag, föstudaginn 29. nóvember. Kirkjuferð er miðvikudaginn 4. desember. Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum,
Föstudaginn 15. nóvember síðastliðinn héldum við upp á Dag íslenskrar tungu, sem haldinn er á afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember ár hvert. Við vorum svo lánsöm að fá Þórarinn Eldjárn í heimsókn af því tilefni, en hann varð sjötugur í ágúst. Hann hélt stutt erindi á sal skólans og las valin ljóð úr bókunum sínum, en eitt þeirra fjallaði einmitt um Jónas. Söngdagskrá vikunnar hefur teki
Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október ár hvert. Við höldum upp á hann á morgun, föstudaginn 1. nóvember. Nemendur mega koma með bangsa (tuskudýr) sem passa í skólatöskuna og jafnframt vera með þá í söng á sal en ekki í frímínútum. Skipulagsdagur verður föstudaginn 8. nóvember. Athugið að þann dag er engin kennsla og ekki starfsemi í Sunnuhlíð eða Sólbrekku. Dagur íslenskrar tungu er laugardagin
Bæklingur sem ber nafnið "Velkomin í Ísaksskóla" er ætlaður foreldrum og forráðamönnum barna skólans. Hann inniheldur samantekt á öllum helstu upplýsingum um skólastarfið sem gott er að hafa við höndina
"Ég er sérstaklega ánægður með hversu lítill skólinn er. Allar boðleiðir eru því stuttar. Barnið er öruggt í þessu litla umhverfi þar sem hlýja og persónuleg samskipti eru ofar öllu."
Páll Harðarson,
skólanefndarformaður
"Ótrúlega persónulegt umhverfi, haldið í gamlar hefðir og framúrskarandi starfsfólk með einstaka hæfileika til að ná fram því besta hjá börnunum okkar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir,
móðir Snæfríðar í 9 ára bekk
Um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs
Gefnar hafa verið út reglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Þessar reglur gilda líka ef öskufalls verður vart í Reykjavík.